2.6.2010 | 16:44
Danska
Ég hef verið að vinna mjög mikið í dönsku og verkefnin hafa verið mjög fjölbreytt. Ég gerði danskt spil og fjölskyldu þar sem ég og hópurinn minn bjuggum til persónu og persónuleika. Svo hef ég verið í kennslubókum. Ég hef líka lært helling af orðum. Ég hef líka lesið tvær sögur, glósað og svarað spurningum úr þeim. Mér finnst danska skemmtileg og finnst hún áhugaverð.
Jeg har arbejdet meget i Danmark og projekter har været meget forskellige. Jeg har spillet en dansk familie, hvor jeg og mit team skabte figuren og personlighed. Så jeg har været i lærebøger. Jeg lærte også en masse ord. Jeg læser også to etager og besvare spørgsmål fra dem. Jeg tror, danske sjovt og finde det interessant.
2.6.2010 | 16:30
Stærðfræði
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 16:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2010 | 14:03
Anna Frank
Ég gerði verkefni um Önnu Frank sem lenti í Helförinni. Helförin er þegar Hitler réð yfir Þýskalandi.Hún gerði dagbók sem er ein helsta upplýsing um Helförina. Ég gerði Photo Story um Önnu Frank og hér sjáið þið það.I did a project on Anne Frank who stumbled into the Holocaust. The Holocaust is when Hitler ruled over Germany. She made a diary which is one of the main information about the Holocaust. I made a Photo Story of Anne Frank and here it is.
2.6.2010 | 09:20
Kveðja frá kennara.
Andri minn.
Þakka þér fyrir samveruna undanfarin 2 ár. Þú ert ljúfur, kurteis og jákvæður drengur sem gott er hafa nálægt sér. Til að þú náir settum markmiðum þarft þú að aga þig til og mundu að vinna skilar árangri.
Með kveðju Anna
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 11:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2010 | 09:32
Fuglar
28.5.2010 | 09:23
Gæluverkefni
28.5.2010 | 09:03
Úkraína
Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 09:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2010 | 14:33
Hallgrímur Pétursson
Ég gerði verkefni um Hallgrím Pétursson. Ég aflaði mér upplýsingar á Wikipedia og Ruv og setti þær á Wordskjal. Svo bjó ég til powerpoint kynningu. Í powerpoint kynningunni gerði ég þrennt nýtt t.d að gera myndir svarthvítar, breyta bakgrunni og slide-ið fyrir skiptingu glæra. Hér er Powerpoint kynningin mín.
Menntun og skóli | Breytt 23.4.2010 kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2010 | 08:48
Landafræði
Ég og árgangurinn höfum verið að fjalla um Evrópu. Fyrsta verkefnið okkar var okkur skipt 2-3 í hóp og ég lenti með Magnúsi Hauki. Við fengum löndin Holland, Ungverjaland og Makedóníu. Við áttum að taka löndin í gegn og afla okkur upplýsingar um þau. Svo áttum við bekkurinn að raða löndunum öllum saman. Þetta kom mjög vel út
Svo áttum við að velja eitt af 12 löndum og ég valdi Úkraínu. Ég átti að gera powerpoint og ég gerði 20 glærur. Svo kom að því að kynna verkefnið og þegar ég kynnti mitt þá gekk það vel.
Þegar við vorum búin þá áttum við að velja annað land úr Evrópu til að fjalla um í Photo Story og ég valdi Ítalíu. Hér er verkefnið.
Andri
15.12.2009 | 09:11
Verk og list
Ég fór fyrst í smíði í verk og list með smíðakennarann Páli Hjálm. Ég og hópurinn minn máttu velja hvort við gerðum árabát eða ávaxtabakka. Ég valdi að gera bát sem var mjög gaman að gera. Ég þurfti að pússa bátinn og pússa sætin sem ég festi svo á bátinn. Eftir það bjó ég til árar sem ég festi á bátinn. Ég fór næst í myndmennt þar sem ég bjó til hreyfimynd. Hreyfimyndin mín heitir Dauði Losermans en ég kom ekki með nafnið. Hún er um man sem er algjör auli en hann dettur í stökki niðum byggingu og sjúkrabíll kom og tók hann. Þar dó hann. svo gerist eitthvað sem ég man ekki eftir. Nú er ég í tónmennt að gera ritgerð um Mickael Jackson. En í tónmennt ætla ég líka að gera hljóð fyrir hreyfimyndina.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar